 
Meðferð tækisins
Meðhöndlaðu tækið og aukahluti af 
varkárni. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa 
til við að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki
og hvers kyns vökvar geta innihaldið 
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef 
tækið blotnar skal leyfa tækinu að 
þorna alveg.
• Hvorki skal nota tækið á rykugum eða
óhreinum stöðum né geyma það þar. 
Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar 
þess geta skemmst.
• Ekki skal reyna að opna tækið.
 
ÍSLENSKA
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal
banka í það eða hrista það. Fíngerð 
hönnun getur skemmst vegna 
ógætilegrar meðferðar.
• Aðeins skal nota mjúkan, hreinan og
þurran klút til að hreinsa yfirborð 
tækisins.
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur
fest hreyfanlega hluti tækisins og 
komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, 
rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi 
sorp- og endurvinnslustöð. Þannig 
geturðu dregið úr óflokkaðri sorplosun 
og stuðlað að endurvinnslu. Skoðaðu 
upplýsingar um umhverfisatriði 
og endurvinnslu á Nokia-vörum 
á www.nokia.com/werecycle eða með 
farsíma á www.nokia.mobi/werecycle.
 Merkið sem sýnir yfirstrikaða 
ruslafötu og er á vörunni, 
rafhlöðunni, bæklingnum eða 
umbúðunum táknar að fara 
verður með allan rafbúnað og 
rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma 
á sérstaka staði til förgunar að líftíma 
vörunnar liðnum. Þessi krafa á við innan 
Evrópusambandsins. Hendið þessum 
vörum ekki með heimilisúrgangi. 
Frekari upplýsingar um umhverfislega 
eiginleika tækisins er að finna 
á www.nokia.com/ecodeclaration.